21. mars, 2011 - 20:17
Fréttir
Aðalfundar Samfylkingarinnar á Akureyri, sem haldinn í Lárusarhúsi fyrir helgi, samþykkti að skora á ríkisstjórnina og þingflokk
Samfylkingarinnar að standa við fyrirheit í stefnu flokksins og samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um innköllun allra aflaheimilda. Fundurinn leggur
áherslu á að skýr ákvæði um þjóðareign auðlinda verði fest í stjórnarskrá og að endurúthlutun
tímabundinna aflaheimilda fari fram í opnum viðskiptum.
Þá samþykkti aðalfundurinn að skora á ríkisstjórnina og þingflokk Samfylkingarinnar að beita sér til árangurs fyrir skarpari
og réttlátari uppstokkun fjármálakerfisins. Fundurinn leggur áherslu að jafnaðarmenn komi á skilvirku eftirliti með
fjármálamarkaði þannig að unnt verði að hemja áhættusækni og koma böndum á sjálftöku og græðgi samhliða
því að réttarstaða lántakenda gagnvart lánakjörum og skilmálum verði bætt.