Hér með ítrekar stjórnin fyrri beiðni sína og skorar á þá Davíð Oddsson og Harald Johannessen, ritstjóra Morgunblaðsins, að biðja Siv Friðleifsdóttur tafarlaust og opinberlega afsökunar á alvarlegu athæfi sínu. Sjái ritstjórarnir ekki ástæðu til þess að biðjast afsökunar á myndbirtingunni óskar stjórnin eftir opinberum útskýringum á því hvers vegna þeir telji það ástæðulaust og hvers vegna slík myndbirting sé ásættanleg að þeirra mati. Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna fagnar afsökunarbeiðni teiknara myndarinnar, Helga Sigurðssonar, en hann hafði samband við þingkonuna og baðst persónulega afsökunar á henni. Er hann maður að meiri fyrir vikið. Stjórn Landssambands framsóknarkvenna mun ítreka ofangreinda beiðni og áskorun ef ritstjórn Morgunblaðsins bregst ekki við. Mál af þessu tagi ber ekki að þegja í hel, segir í fréttatilkynningu framkvæmdastjórnar.