ASÍ gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum
Miðstjórn Alþýðusambandsins gagnrýnir harðlega forgangsröðun í ríkisfjármálum sem fram kemur í þingsályktun um fjármálaætlun fyrir árin 2017-2021. Hvorki er að finna merki þess að efnahagsstefna stjórnvalda til næstu ára muni treysta efnahagslegan stöðugleika né undirbyggja félagslega velferð og aukinn jöfnuð í samfélaginu í áætluninni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ
Jafnframt kemur fram að slaki í ríkisfjármálum samhliða vaxandi spennu í hagkerfinu og uppgangi á vinnumarkaði mun ýta undir ofþenslu og óstöðugleika og vinna gegn peningamálastefnunni. Það mun auka verðbólguþrýsting og hækka vexti.
Þá er aukin misskipting gagnrýnd og bent á að félagslegum stöðugleika hafi farið aftur með því að veikja mikilvæg stuðningskerfi á borð við barna- og húsnæðisbótakerfin
„Brýnar velferðarumbætur eins og uppbygging félagslegs húsnæðiskerfis, innleiðing nýs húsnæðisbótakerfis og endurskoðun almannatrygginga eru án fullnægjandi fjármögnunar í áætluninni,“ segir í tilkynningunni.
Nauðsynleg fjármögnun á þjónustu heilbrigðiskerfisins og lækkun á gjaldtöku sjúklinga sé ekki tryggð. Framtíðarsýn stjórnvalda í velferðarmálum í allt of ríkum mæli byggi á þeirri forsendu, að jöfnun byrða eigi að afmarkast við viðkomandi hópa. Þá kemur fram gagnrýni á að þak á útgjöld til heilbrigðismála eigi að fjármagna með hækkun á almenna þjónustu, fjármagna á félagslegt húsnæðiskerfi og húsnæðisbótakerfi með skerðingum á öðrum þáttum velferðarkerfisins og breytingar á almannatryggingakerfinu eiga í of ríkum mæli að fjármagnast með auknum tekjutengingum.
„Þessi stefnumörkun stjórnvalda styður á engan hátt við þau markmið sem sett voru fram í rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins, um bætt og breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Rammasamkomulag þessara aðila byggir á sameiginlegri ábyrgð á eflingu kaupmáttar byggðum á efnahagslegum og félagslegum stöðugleika. Verkalýðshreyfingin mun ekki sætta sig við að stjórnvöld skili auðu og leggi enn og aftur byrðarnar á herðar launafólks,“ segir í tilkynningunni. /epe