Fræðslumál er lang stærsti málaflokkurinn og á árinu 2010 var til hans var varið 342,6 millj. kr. eða 61,1% af skattekjum. Árið 2008 var varið til fræðslumála 64,2% af skatttekjum ársins 2008. Þessi lækkun endurspeglar vel þær aðhaldsaðgerðir sem gripið var til í rekstri sveitarfélagsins á öllum sviðum strax haustið 2008. Með þeim aðgerðum tókst að halda þeirri góðu fjárhagsstöðu sem sveitarfélagið hefur búið við undanfarin ár. Á árinu 2010 voru fjármunatekjur umfram fjármagnsgjöld A og B hluta 4,2 millj. kr.
Rekstrarniðurstaða A og B-hluta var jákvæð um 56,1 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2010 nam 576,2 millj. kr. Skuldir við lánastofnanir voru 280,6 millj. kr. í árslok 2010 og er það lækkun um 49,8 millj. kr. frá árinu 2009. Fjárfestingar á árinu 2010 voru 23,1 millj. kr. Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti 2010, nam veltufé frá rekstri A og B hluta 74,5 millj. kr. Handbært fé hækkaði um 11,7 millj. kr. og nam það 106,6 millj. kr. í árslok 2010.
Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2010 var farsæll og eru starfsmönnum færðar þakkir fyrir vel unnin störf. Íbúar sveitarfélagsins fá þakkir fyrir sitt framlag og að sýna aðhaldsaðgerðum undanfarinna ára skilning, segir í fréttatilkynningu.