Árleg kaffisala á Hólavatni

Árleg kaffisala sumarbúða KFUM og KFUK að Hólavatni í Eyjafjarðarsveit fer fram sunnudaginn 14. ágúst kl. 14.30-17.00. Á staðnum eru leiktæki fyrir börnin, hoppukastali, trampólín og bátar. Þá verður nýbyggingin opin en stefnt að því að taka hana í notkun sumarið 2012. Aðsókn í sumar var sú besta frá stofnun sumarbúðanna 1965 og var fullt í flesta flokka sumarsins.  

Á kaffisölu eru allir hjartanlega velkomnir en sérstaklega er gaman að sjá Hólvetninga, gamla sem nýja. Verð fyrir fullorðna er 1.500 kr. en 500 kr. fyrir börn 6-12 ára og frítt fyrir leikskólabörn.

Nýjast