Áramótabrenna og flugeldasýning

Mynd/Akureyrarbær
Mynd/Akureyrarbær

Hin árlega áramótabrenna á Akureyri verður við Réttarhvamm í kvöld, gamlárskvöld, auk þess sem boðið verður upp á flugeldasýningu. Kveikt verður í brennunni kl. 20.30 en flugeldasýningin hefst kl. 21.00. Það eru Norðurorka og Framkvæmdadeild Akureyrarbæjar sem standa fyrir þessari dagskrá í samstarfi við Súlur björgunarsveitina á Akureyri.

Að venju má búast við mikilli umferð við Réttarhvamm á gamlárskvöld og því er mælt með því að fólk leggi tímanlega af stað til að njóta brennunnar og  flugeldanna. 

Í Hrísey verður kveikt í áramótabrennunni kl. 17.00 í námunni fyrir austan Stekkjanef. Boðið verður upp sætaferðir frá Hríseyjarbúðinni í traktorskerru kl. 16.45.

Í Grímsey verður kveikt í brennunni kl. 20.00 við norðurendann á tjörninni og boðið er upp á flugeldasýningu á eftir. Það er björgunarsveitin Sæþór sem skipuleggur dagskrána. 

Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast