Annarsamur dagur hjá björgunarsveitum landsins

Dagurinn hefur verið afar annasamur hjá björgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar í dag og varlega áætlað hafa beiðnir um aðstoð skipt hundruðum sl. sólarhring. Verkefnin hafa verið af ýmsu tagi; fok á lausum munum, þakplötum og þökum, gámum, girðingum, skiltum, fellihýsum og fánastöngum. Skip hafa losnað frá bryggju og moka hefur þurft snjó úr bátum.  

Fólki hefur verið komið í og úr vinnu, skólabörnum til síns heima, matur fluttur á elliheimili og lyfjum komið í heimahús. Í umferðinni hafa verið mikil vandræði og hefur þurft að losa mikinn fjölda fastra bíla, innan- sem utanbæjar. Flestar voru aðstoðarbeiðnir á Suðurnesjum, Akureyri, Hveragerði, Hvammstanga, Skagaströnd, höfuðborgarsvæðinu, Grundarfirði og Dalvík þar sem björgunarsveitin stendur enn í ströngu.

Nýjast