Andri Fannar Stefánsson, leikmaður meistaraflokks KA í knattspyrnu, hefur ákveðið að segja skilið við félagið nú í haust en samningur hans er útrunninn. Andri hefur leikið með KA frá barnæsku. Hann á að baki 66 leiki með meistaraflokki í deild og bikar og skorað hann 11 mörk í þessum leikjum. Einnig hefur hann verið vel liðinn þjálfari hjá yngriflokkum KA, ásamt því sem hann hefur haldið vel utan um heimasíðu kanttspyrnudeildar.
,,Þetta var erfið ákvörðun enda hef ég nánast átt heima í KA-heimilinu síðan ég kom þar á minu fyrstu æfingu um fimm ára gamall. KA er frábært félag og margt frábært fólk þar svo ég vona að stjórnin og þjálfari nái á komandi árum að byggja upp öflugt lið sem getur gert atlögu að úrvalsdeildarsæti,” sagði Andri í stuttu samtali við heimasíðu KA en hann hyggst spila í Pepsi-deildinni á næsta ári.