Andrésarleikarnir 40 ára

Mynd/Pedromyndir
Mynd/Pedromyndir

40. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum eru nú haldnir í Hlíðarfjalli við Akureyri g standa leikarnir fram á laugardag. Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með um 700-800 keppendur á aldrinum 6-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og  fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2500 manns sæki leikana. Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu, en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og á sú grein án efa eftir að eflast og stækka innan leikanna.

Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir og/eða hreyfihamlaðir íþróttamenn. Í tilkynningu segir að aðstæður í Hlíðarfjalli séu nú með ágætum þó oft hafi verið meiri snjór í fjallinu. Búast mótshaldarar við góðri þátttöku og miklu fjöri á afmælisleikunum í ár. Nú þegar hafa rétt tæplega 700 börn verið skráð frá 19 félögum á Ísland, en auk þeirra eru nokkrir gestir frá Noregi sem taka þátt.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld að lokinni skrúðgöngu allra þátttakenda um götur Akureyrar. Setningarathöfnin verður mjög vegleg á afmælisári þar sem m.a. Páll Óskar skemmtir gestum. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í þrautabrautir.  Leikunum er svo slitið laugardaginn 25. apríl. Í tilefni afmælisleika eru kvöldvökur og verðlaunaafhendingar með veglegra sniði en vanalega og allir keppendur fara heim með góðar og gagnlegar gjafir frá mótshöldurum.

 

Nýjast