ANDRÉSAR ANDAR LEIKARNIR AÐ HEFJAST

41. Andrésar andar leikarnir í skíðaíþróttum verða haldnir af Skíðafélagi Akureyrar í Hlíðarfjalli dagana 20.-23. apríl 2016. Andrésarleikarnir eru stærsta skíðamót landsins með yfir 800 keppendur á aldrinum 5-15 ára ár hvert. Þeim fylgja þjálfara, fararstjórar, foreldrar og fjölskyldur og má því gera ráð fyrir að um 2.500-3.000 manns sæki leikana.

Um langt skeið hefur verið keppt bæði í alpagreinum skíðaíþrótta sem og skíðagöngu en árið 2012 var í fyrsta skipti keppt á snjóbrettum og hefur sú grein verið að eflast og stækka innan leikanna. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn.

Nú er í fyrsta skipti 5 ára börnum boðið að taka þátt í leikunum og fá þau að spreyta sig í leikjabraut að þessu sinni. Andrésarleikarnir eru fjölskylduhátíð skíðamanna og því hefur oft verið óskað eftir því að yngri systkini fái að taka þátt í þeim. Með þessu er komið til móts við þá ósk.

Eftir frábæran skíðavetur um allt land eru aðstæður í Hlíðarfjalli nú með allra besta móti og veðurspá er góð. Því búast mótshaldarar við miklu fjöri á leikunum í ár. Um 830 börn frá 18 félögum á Íslandi hafa verið skráð til leiks en einnig er búist við nokkrum gestum frá Noregi.

Að venju verða leikarnir settir í Íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudagskvöldið 20. apríl að lokinni myndalegri skrúðgöngu allra þátttakenda um götur bæjarins. Fimmtudag, föstudag og laugardag er svo keppt í öllum greinum, auk þess sem yngri þátttakendur fara í leikjabrautir. Veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar eru í lok hvers keppnisdags.

Einkunnarorð Andrésar andar leikanna eru; Njótum og skemmtum okkur saman!

Nýjast