Amaro-stjarnan til bæjarins

Amaro-stjarnan hefur í áratugi verið tákn fyrir komu jólanna fyrir fjölmarga Akureyringa. Mynd: akur…
Amaro-stjarnan hefur í áratugi verið tákn fyrir komu jólanna fyrir fjölmarga Akureyringa. Mynd: akureyri.is

Ákveðið hefur verið að umsjón með jólastjörnu Amaro sem glatt hefur bæjarbúa á aðventunni frá því um miðjan síðustu öld, verði framvegis á hendi Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Kristján Skarphéðinsson setti sig í samband við bæjarfulltrúa vegna málsins og ritaði í framhaldinu bréf til bæjarstjóra 1. nóvember sl. þar sem hann óskaði eftir að Akureyrarbær tæki við því verkefni að koma stjörnunni upp í byrjun aðventu og skipta um ljósaperur eftir þörfum.

Í bréfinu frá Kristjáni segir meðal annars: „Faðir minn lét smíða þessa jólastjörnu 1955 og hefur hún síðan verið tákn um komu jólanna, og mörgum finnst ekki jólin komin fyrr en ljósin hafa verið tendruð í byrjun aðventunnar."

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri svaraði bréfi Kristjáns 6. nóvember með þeim orðum að bæjarfulltrúar hefðu fallist á að taka þetta verkefni til bæjarins og að bæjartæknifræðingi hafi verið falið að vera í sambandi við Kristján.

Nýjast