Síðustu daga hefur Slysavarnadeildin á Akureyri heimsótt leikskóla bæjarins og fært þeim endurskinsvesti að gjöf. Slysavarnafélagið Landsbjörg, í samvinnu við Neyðarlínuna og fjölmörg fyrirtæki í landinu, stendur fyrir verkefni undir heitinu Allir öruggir heim og er gjöfin hluti af því verkefni. Vestin eru af vandaðri gerð og merkt neyðarnúmerinu 112 og heiti átaksins á baki.