Allar íbúðagötur mokaðar í dag

Norðurbyggðin er að verða fær bílum
Norðurbyggðin er að verða fær bílum

 „Við stefnum að því að allar íbúðagötur bæjarins verði færar í dag. Við erum með öll tiltæk moksturstæki í okkar þjónustu, þannig að ég geri mér vonir um að í lok dagsins verði allar götur vel færar,“ segir Gunnþór Hákonarson yfirverkstjóri framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar. Meðfylgjandi mynd var tekin í morgun, þegar verið var að moka snjóinn í Norðurbyggð.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast