Við stefnum að því að allar íbúðagötur bæjarins verði færar í dag. Við erum með öll tiltæk moksturstæki í okkar þjónustu, þannig að ég geri mér vonir um að í lok dagsins verði allar götur vel færar, segir Gunnþór Hákonarson yfirverkstjóri framkvæmdadeildar Akureyrarbæjar. Meðfylgjandi mynd var tekin í morgun, þegar verið var að moka snjóinn í Norðurbyggð.
karleskil@vikudagur.is