Íbúum á Akureyri hefur fjölgað um 234 á milli ára. Þann 1. janúar árið 2016 voru skráðir íbúar alls 18.300 en eru í dag 18.534. Þetta er heldur meiri fjölgun en undanfarin ár. Til samanburðar fjölgaði íbúum um 120 milli áranna 2013 og 2014 og enn þá minna milli áranna 2014 til 2015, eða 88 manns.
Sé íbúaþróun Akureyrar skoðuð undanfarin tíu ár, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands, sést að íbúafjölgun á milli áranna 2004 og 2005 var tæplega 300 manns og um 270 manns á milli áranna 2007 og 2008. Heldur hefur hægst á íbúaþróuninni síðan þá og hafði ekki náð 200 manns á milli ára fyrr en nú.
Samkvæmt upplýsingum frá Akureyrarbæ er skýringin á aukningunni m.a. sú að sýrlenskir nýbúar hafi sest hér að. -