Akureyri með tveggja marka sigur gegn Val

Akureyri vann í kvöld tveggja marka sigur gegn Valsmönnum, 28:26, í Íþróttahöllinni á Akureyri í N1- deild karla í handbolta. Það var frábær fyrri hálfleikur Akureyrarliðsins sem lagði grunninn að sigrinum í kvöld, en norðanmenn höfðu sjö marka forystu í hálfleik, 17:10. Valsmenn klóruðu í bakkann í seinni hálfleik en það dugði ekki til og Akureyri fagnaði 10 sigri sínum í vetur.

 

Með sigrinum er Akureyri komið með 21 stig á toppi deildarinnar og hefur fjögurra stiga forskot á Fram sem er í öðru sæti, en Fram gerði jafntefli við FH í kvöld. Valur hefur átta stig í sjötta sæti.

Fyrri hálfleikurinn var frábær að hálfu heimamanna. Vörnin gríðarlega sterk með Guðlaug Arnarsson í broddi fylkingar sem varði hvert skotið á eftir öðru og sóknin í fínu lagi. Valsmönnum gekk illa að finna glufur á vörninni, skutu illa á markið og oftar en ekki rötuðu skotin framhjá markinu, þegar þau á annað borð komust framhjá vörn Akureyrar. Það reyndi því lítið á Sveinbjörn Pétursson í marki heimamanna sem varði þó sex skot. 

Akureyri tók fljótt öll völd í leiknum eftir jafna byrjun fyrstu tíu mínútnar. Norðamenn keyrðu fljótlega yfir Valsmenn, með öflugri vörn komu hraðarupphlaup og heimamenn náðu mest sjö marka forystu. Staðan í háfleik 17:10.

Valsmenn komu öflugir inni í seinni hálfleikinn. Hlynur Morthens fór að verja vel í markinu og gestirnir söxuðu hægt og bítandi á forskotið. Norðanmenn náðu ekki að fylgja eftir góðum fyrri hálfeik og var munurinn kominn niður í tvö mörk, 26:24, þegar fimm mínútur voru eftir.

Ernir Hrafn Arnarsson, sem átti stórgóðan leik fyrir Val, hefði getað minnkað muninn niður í eitt mark þegar tvær mínútur voru eftir en skaut í slá. Í kjölfarið skoraði Oddur Gretarsson fyrir Akureyri og sigurinn í höfn. Lokatölur, 28:26.

Mörk Akureyrar: Oddur Gretarsson 6, Bjarni Fritzson 6, Heimir Örn Árnason 5, Hörður Fannar Sigþórssson 4, Daníel Einarsson 4, Guðmundur Hólmar Helgason 3.

Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 14.

Mörk Vals: Ernir Hrafn Arnarsson 10, Orri Freyr Gíslason 5, Sturla Ásgeirsson 4, Heiðar Þór Aðalsteinsson 4, Alex Jedic 1, Einar Örn Guðmundsson 1.

Varin  skot: Hlynur Morthens 17 skot.

Nýjast