Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, 34 ára Ísfirðingur, var nýlega ráðin verkefnisstjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Hún flytur norður í ágúst og segir marga spennandi atvinnumöguleika í boði á Akureyri. Albertína lauk BA-prófi í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands árið 2005 og meistaraprófi í landfræði með áherslu á byggðamál á Íslandi frá sama skóla árið 2012.
Albertína starfar hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Ísafirði. Hún hefur verið virkur þátttakandi í félagsmálum á Ísafirði og var forseti bæjarstjórnar hjá Ísafjarðarbæ síðastliðin fjögur ár.
Ítarlega er rætt við Albertínu í prentútgáfu Vikudags