Akureyrarbær semur við Vodafone um símaþjónustu

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Ómar Svavarsson forstjóri Vodafone takast í hendur eftir u…
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Ómar Svavarsson forstjóri Vodafone takast í hendur eftir undirritun.

Vodafone mun annast alla símaþjónustu fyrir Akureyrarbæ næstu þrjú árin, samkvæmt samningi sem undirritaður var fyrir norðan í vikunni.  Samningurinn var gerður að undangengnu útboði sem tvö símafyrirtæki tóku þátt í.  Tilboð Vodafone var hagstæðara og í framhaldinu var gengið til samninga um fastlínu- og farsímaþjónustu til næstu þriggja ára.

Á sama tíma var undirritaður samningur um símaþjónustu við Norðurorku, eina af 19 stofnunum Akureyrarbæjar sem geta gengið inn í samninginn og tryggt sér þjónustu Vodafone á sömu kjörum og sveitarfélagið sjálft. Með samningnum hefur Vodafone styrkt stöðu sína enn frekar í þjónustu við sveitarfélögin því nú eru sjö stærstu sveitarfélög landsins í viðskiptum við Vodafone; Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Akureyri, Reykjanesbær, Garðabær og Mosfellsbær  auk Seltjarnarness, Norðurþings og fleiri.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri segist ánægður með samninginn, enda tryggi hann í senn örugg fjarskipti og umtalsverða lækkun á fjarskiptakostnaði bæjarins. Útboðsferlið hafi verið opið og gagnsætt og að niðurstaðan tryggi hagræðingu í rekstri bæjarins, sem sé mikilvægt í árferði eins og nú er. Ómar Svavarsson forstjóri Vodafone segir að samningurinn sé mikill áfangi fyrir Vodafone því nú sé eitt stærsta og öflugasta bæjarfélag landsins komið í umfangsmikil viðskipti við félagið.

Nýjast