Ákært í Nornamálinu

Fjórir einstaklingar hafa verið ákærðir í Nornamálinu svokallaða.,
Fjórir einstaklingar hafa verið ákærðir í Nornamálinu svokallaða.,

Fjórir einstaklingar hafa verið ákærðir í Nornamálinu svokallaða. Forsaga málsins er sú að konur úr mótorhjólaklúbbnum MC Nornum og vinir þeirra réðust að manni á Akureyri í júlí í fyrra.

Maðurinn hlaut talsverða áverka, hann þrírifbeinsbrotnaði og fékk áverka á höfuð eftir endurtekin spörk. með þeim afleiðingum að hann þrírifbeinsbrotnaði og fékk áverka á höfuð eftir spörk. Maðurinn sem ráðist var á stytti sér aldur daginn eftir að hann lagði fram kæru í málinu. Fréttablaðið fjallaði fyrst um málið

Árásin sem framin var þann 19. júlí á síðasta ári eftir gleðskap MC Norna. Fyrrverandi kærasta mannsins sem ráðist var á er ákærð í málinu ásamt þremur karlmönnum. Fórnarlamb árásarinnar flúði heimabæ sinn eftir árásina.

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í vikunni. Verði sakborningar fundnir sekir gætu þeir átt yfir höfði sér fangelsisvist og sektir.

Nýjast