Snjóbretta- og Tónlistarhátíðin AK Extreme verður haldin dagana 7.–10. apríl á Akureyri. Hátíðin er haldin í Hlíðarfjalli, í miðbæ Akureyrar, í Gilinu og Sjallanum. Hápunktur AK Extreme er Big Jump/Gámastökks keppni Eimskips í Gilinu sem fram fer á laugardagskvöld kl. 21.00. Þar koma saman færustu snjóbrettamenn Íslands ásamt erlendum keppendum þar sem keppt verður um AK Extreme titilinn og hringinn. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar www.akx.is og á Facebooksíðu viðburðarins. Framkvæmdaraðilar hátíðarinnar er AKX ehf.