"Með þessu er gerð atlaga að heilli starfsstétt sem setur hundruð manna og fjölskyldur þeirra í allgjört uppnám. Rúmlega 30 fjölskyldur hafa allt sitt undir rekstri og kvóta þessa skips auk þess sem fleiri hafa svo atvinnu af því að þjónusta skipið í landlegum og á meðan skipið er á sjó. Og er það með ólíkindum að hægt sé að fjalla um þessa atvinnugrein og stuðla að hruni hennar í núverandi mynd eins og engir einstaklingar eigi þar hlut að máli nema örfáir útgerðarmenn, og við það getum við ekki lengur unað. Hér stundum við okkar vinnu og viljum gera áfram. Nær væri að ríkisstjórnin færi að snúa sér að raunverulegum vandamálum þjóðarinnar því af nægu er þar að taka. Í stað þess að veikja stoðir samfélagsins enn frekar með niðurrfi undirstöðu atvinnugreinar Íslendinga og ekki vitandi hvert það leiðir fyrir stóran hóp Íslendinga," segir ennfremur í yfirlýsingunni.