Bæjarráð Akureyrar ákvað á fundi sínum í morgun að áfrýja til Hæstaréttar niðurstöðu Héraðsdóms Norðurlands eystra frá 10. apríl sl. í máli Akureyrarkaupstaðar gegn Snorra Óskarssyni og innanríkisráðuneytinu til réttargæslu. Í tilkynningu frá bænum segir að afar brýnt sé að fá úrskurð Hæstaréttar um mörk tjáningarfrelsis kennara í grunnskólum og ábyrgð þeirra þegar kemur að umfjöllun um minnihlutahópa.
"Eðli málsins samkvæmt geta kjörnir fulltrúar Akureyrarkaupstaðar og embættismenn bæjarins ekki tjáð sig frekar um einstaka þætti þessa máls fyrr en niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir," segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Snorri, jafnan kenndur við Betel, var sagt upp störfum við Brekkuskóla á Akureyri árið 2012 vegna umdeildra bloggskrifa um samkynhneigð, en uppsögnin var dæmd ólögleg í Héraðsdómi, líkt og innanríkisráðuneytið hafði áður komist að niðurstöðu um.
Snorri var sýknaður af öllum kröfum Akureyrarbæjar og hyggst höfða skaðabótamál gegn bænum þar sem hann hefur verið launalaus frá 1. janúar árið 2013.