Eins og Vikudagur hefur greint frá mun Nettó verslun í Hrísalundi verða opnuð í febrúar þar sem áður var rekin Samkaup Úrval búð. Í tilkynningu frá Samkaupum segir að einnig verði Ellos sérvöruverslun opnuð á neðri hæð sama húsnæðis. Nettó verslunin verður byggð upp í sama stíl og aðrar Nettó verslanir þar sem áhersla er lögð á lágt verð og mikið vöruval auk þess sem meira verður um eigin innflutning Nettó.
„Sett verður upp úðunarkerfi í grænmetistorgi sem viðheldur lengur ferskleika ávaxta og grænmetis auk þess sem boðið verður upp á „Bakað á staðnum“ sem notið hefur mikilla vinsælda í Nettó verslunum, enda lagt upp með mikil gæði, lágt verð og regluleg tilboð,“ segir í tilkynningu. Þá segir ennfremur að Nettó hafi náð samkomulagi við rekstraraðila Kaffitorgs um að bjóða upp á heitan mat í hádeginu og á kvöldin í rými við hliðina á Nettó í Hrísalundi, en mikil óánægja hefur gætt meðal fasta kúnna Hrísalundar um að heita borðið og kjötborðið hafi átt að víkja. En þó heita matnum hafi verið bjargað mun kjötborðið senn heyra sögunni til. Gunnar Egill Sigurðsson, forstöðumaður verslunarsviðs Samkaupa, segir að með þeim breytingum sem gert hafi verið í Hrísalundi, verslunarkjarna sem er nú í mikilli uppbyggingu, fái Akureyringar betri þjónustu en áður.
„Verð á matvöru verður lægra og úrvalið meira. Einnig verður sérvaran fjölbreyttari. Þegar ákvörðun um breytingu verslunar lá fyrir var ljóst að vegna plássleysis yrði að finna heita matnum annað rými. Það verða því ekki stórar breytingar þar þó að umsjón með honum færist yfir til rekstraraðila Kaffitorgs sem verður við hliðina á Nettó. Við hlökkum til að bjóða Akureyringa velkomna í Nettó og Ellos í Hrísalundi,“ segir Gunnar í tilkynningu.
-Vikudagur, 28. janúar