Áfram frítt í sund fyrir atvinnuleitendur á Akureyri

Íþróttaráð samþykkti á síðasta fundi sínum að halda áfram að veita Akureyringum, sem skráðir eru að fullu sem atvinnuleitendur, frían aðgang að Sundlaugum Akureyrarbæjar. Tilboð þetta gildir alla virka daga tímabilið 1. október 2011 til 15. maí 2012.  

Á fundinum var lögð fram fyrirspurn frá Soffíu Gísladóttur forstöðumanni skrifstofu Vinnumálastofnunar á Norðurlandi eystra vegna málsins. Einnig lagt fram minnisblað frá Elínu H. Gísladóttur forstöðumanni Sundlaugar Akureyrar þar sem farið er yfir heimsóknir atvinnuleitenda veturinn 2010 til 2011.

Nýjast