Aflamarks- og krókaaflamarks- skipum fækkað mikið

Fiskiskipum í aflamarks- og krókaaflamarkskerfinu hefur fækkað um 286 á síðustu fimm árum, þ.e. frá 2006 - 2011 eða um 31% samkvæmt samantekt LÍÚ, byggðri á gögnum Fiskistofu. Sé hins vegar horft á þróunina síðastliðinn áratug kemur í ljós að fækkunin nemur 62,6%.  

Alls voru skráð fiskiskip 930 talsins fiskveiðiárið 2006 - 2007 en þeim hafði fækkað niður í 644 á yfirstandandi fiskveiðiári eða um 31%. Ef horft er til síðustu fimm ára er lítill munur er á þróuninni, hvort um er að ræða aflamarksskip eða krókaaflamarksbáta. Þannig fækkaði þeim fyrrnefndu um tæp 34% á fyrrgreindu tímabili en krókaaflamarksbátunum fækkaði um 28%. Fiskveiðiárið 2001-2002 voru aflamarks- og krókaaflamarksskip hins vegar samtals 1722 talsins en eru nú 644. Á síðustu tíu  árum hefur þeim því fækkað um meira en eitt þúsund eða sem nemur 62,6%.

Nýjast