Afgangs draumar

Myndlistarsýning Aðalsteins Þórssonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit. Opnar föstudaginn 12. ágúst k…
Myndlistarsýning Aðalsteins Þórssonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit. Opnar föstudaginn 12. ágúst kl. 17.00

Myndlistarsýning Aðalsteins Þórssonar í Einkasafninu Eyjafjarðarsveit. Opnar föstudaginn 12. ágúst kl. 17.00.

Nú er röðin komin að safnstjóranum sjálfum að sýna í Einkasafninu. Aðalsteinn hefur búið til innsetningu eða jafnvel útstillingu á plast munum úr safneigninni umhverfis Einkasafnið og inni. Jafnframt er teflt fram fleiri efnum lífrænum og ólífrænum til einstakrar fagurfræðilegrar upplifunar.

„Í verkefni mínu Einkasafninu geng ég út frá því að afgangar neyslu minnar séu menningarverðmæti, á svipaðan hátt og litið er á hefðbundna sköpun, afganga hugans sem menningarverðmæti. Ég leitast við að halda til haga öllu því sem af gengur af minni daglegu neyslu,“ segir Aðalsteinn og bætir við að þetta sé megin inntak Einkasafnsins.

Einkasafnið er verkefni sem Aðalsteinn hefur unnið að síðan um aldamótin síðustu. Safns sem á heima í gróðursælu gildragi í Eyjafjarðarsveit.

Einkasafnið leitast við að gera sýnilega stærð einstaklingsins í umhverfinu, efla umhverfisvitund og vinna að sjálfbærni.

Aðalsteinn Þórsson er fæddur 1964 á Kristnesi í Eyjafirði. Haustið 1989 hóf hann fullt nám í Myndlistaskólanum á Akureyri og hefur hann starfað að listsköpun síðan.

Aðalsteinn fór í framhaldsnám í Finnlandi og seinna í Hollandi þar sem hann lauk MFA námi frá Dutch Artinstitute, ArtEz, þá Aki2 í borginni Enchede. Í Hollandi bjó Aðalsteinn og starfaði til ársins 2016, lengst af búsettur í Rotterdam. Framan af vann hann með ólíka miðla og efni. Hann varð hallur undir hugmyndalist en sýndi um leið mikið efnisnæmi. Söfnunin sem seinna varð að Einkasafninu lét fyrst á sér kræla í kringum aldamótin 2000.

Aðalsteinn er formaður Gilfélagsins, félags um uppbyggingu menningarstarfsemi í Listagilinu á Akureyri og er í stjórn Myndlistarfélagsins á Akureyri.


Athugasemdir

Nýjast