Aðventuveisla SN með stórsöngvurum
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður til sannkallaðrar Aðventuveislu í Menningarhúsinu Hofi sem mun einkennast af jólagleði, birtu og yl þann 26. nóvember klukkan 18:00 og sunnudaginn 27. nóvember klukkan 16:00. Búast má við glæsilegri dagskrá en stórsöngvararnir Kristján Jóhannsson og Sigríður Thorlacius munu syngja saman ásamt stúlknakór á tónleikunum.
Kristján hefur skapað sér sess sem einn allra fremsti dramatíski tenór okkar tíma og er fæddur og uppalinn á Akureyri. Sigríður er landsþekkt fyrir seiðandi söng sinn og fallega sviðsframkomu m.a. með hljómsveitinni Hjaltalín. Á efnisskrá verða m.a. lögin Jólakötturinn, Sleðaferðin, Geso Bambino og Ó helga nótt. Það stefnir í mjög góða aðsókn í Aðventuveislu SN. Nánast uppselt er á fyrri tónleikana og er fólk því hvatt til að tryggja sér tímanlega sæti á þá seinni. Miðaverð er kr. 3600 í forsölu en henni lýkur 4. nóvember og þá er miðaverð kr. 4900.