Aðstaða til kennslu í íþróttum og listum í Grímsey mjög erfið

Skólanefnd Akureyrar fór í heimsókn í Grímseyjarskóla á dögunum. Þar var aðstaða skólans yfirfarin og starfið kynnt og rætt. Fram kom að aðstaða til kennslu í íþróttum og listum er mjög erfið. Kemur þar til að húsbúnaður í sal er þungur og erfitt að færa til ásamt því að lítið er til af hentugum búnaði til kennslu miðað við aðstæður.  

Varðandi kennslu í listum kom fram að ekki eru menntaðir kennarar eða listamenn til staðar í eyjunni. Skólanefnd samþykkti að óska eftir því við stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar að skipt verði út búnaði í sal Múla sem geri það einfaldara að losa hann svo hægt sé að kenna þar íþróttir. Þá var fræðslustjóra og skólastjóra Grímseyjarskóla falið að skoða leiðir til þess að efla listkennslu í skólanum fyrir skólaárið 2011-2012. 

Nýjast