Á fundi bæjarráðs Akureyrar 7. Janúar sl. var stofnaður sérstakur aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar. Í hópnum eiga sæti oddvitar allra flokka í bæjarstjórn ásamt bæjarstjóra og fjármálastjóra bæjarins. Að auki vinnur Magnús Kristjánsson sérfræðingur hjá KPMG með hópnum. Meginmarkmið með starfi aðgerðarhópsins er að vinna að tillögum um að koma á betra jafnvægi í rekstri sveitarfélagsins þannig að rekstur Aðalsjóðs verði sjálfbær til lengri tíma. Í fréttatilkynningu frá bænum segir að sérstaklega sé horft til eftirfarandi atriða:
a) Að draga úr rekstrarkostnaði strax á árinu 2016.
b) Að móta tillögur um aðgerðir sem miði að því að mæta áætlaðri hagræðingu áranna 2017-2019.
c) Að setja skýrari reglur um nýráðningar starfsmanna.
d) Að móta tillögu að upplýsingagrunni um starfsemi Akureyrarbæjar sem allar deildir fylla inn í svo fyrir liggi við fjárhagsáætlunarvinnu á hverjum tíma áreiðanlegar upplýsingar um starfsemi og þjónustu, s.s. fjölda stöðugilda, fjölda starfsmanna, kostnað á hvern íbúa og/eða þjónustuþega. Notast verði við samræmt form starfsáætlana.
e) Að móta skýrara ferli fyrir fjárhagsáætlunarvinnu hvers árs, þar sem leikreglur verða settar fram með það skýrum hætti að þær verði ekki misskildar. Vinna skal í nánu samráði við formenn nefnda, embættismenn og stjórnendur að tillögunum.
„Aðgerðarhópurinn skal hafa að leiðarljósi að staðinn sé vörður um grunnþjónustu við íbúa bæjarins en leitað verði leiða til að veita hana á hagkvæmari hátt. Miða skal að því að jafnvægi náist í rekstri A-hluta starfsemi sveitarfélagsins á árinu 2017 og veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum A-hluta verði bætt og verði að lágmarki 7,5% á árinu 2018. Einnig að gætt verði að markmiðum kynjaðrar fjárhagsáætlunar og að til viðmiðunar verði notuð 10 ára áætlun sem unnin var árið 2013,“ segir í tilkynningu.
Gert er ráð fyrir að hópurinn fundi einu sinni í viku og skili tillögunum til bæjarráðs fyrir 15. apríl 2016.