Sjálfsögð mannréttindi eru að heilbrigðisstofnanir séu sem næst þeim sem nýta og treysta á þjónustuna. Óöryggið stuðlar að því að fólk flytji í burtu. Þessi niðurskurður mun fækka starfsfólki og kippa grundvelli undan fjölda heimila í Fjallabyggð. Ennfremur mótmælir fundurinn þeirri aðför að öldrunarstofnunum Akureyrarbæjar sem áðurnefnt frumvarp er, en það gerir ráð fyrir að fækka hjúkrunarrýmum um alls tíu. Þessi niðurskurður kemur verulega á óvart þar sem öldrunarstofnanirnar hafa fullnýtt hjúkrunarrými sín á undanförnum árum og neyðarástand ríkir víða á heimilum þar sem aldraðir komast ekki í hjúkrunarrými. Þetta mun fækka verulega starfsmönnum þessara stofnana. Í auknu atvinnuleysi og mikilli óvissu um stöðu atvinnumála er óskiljanlegt að ríkið skuli ráðast á starfsfólk og heimilismenn þessara stofnana. Fundurinn trúir því ekki að þingmenn þessa kjördæmis láti það viðgangast að lífskjör á Eyjafjarðarsvæðinu séu skert með þessum hætti. Fundurinn krefst þess að þessi niðurskurður verði endurskoðaður og tekinn til baka.