Á von á erfiðum og tímafrekum viðræðum

„Þetta verður ekki auðvelt verkefni og ég á frekar von á að það verði tímafrekt," segir Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju og formaður samninganefndar Starfsgreinasambandsins, um komandi kjaraviðræður. Kjarasamningar SGS við Samtök atvinnulífsins, ríki og sveitarfélög féllu úr gildi í fyrradag, 30. nóvember. Stór hluti launamanna á almennum vinnumarkaði er því nú með lausa samninga.  

Björn segir að kröfugerð verði lögð fram í næstu viku, á mánudag fyrir SA og launanefnd sveitarfélaga og þriðjudag fyrir ríkið og verði kynnt í framhaldi af því.  „Við munum kynna okkar kröfugerð í kjölfarið, en ég á von að þetta verði frekar erfitt og ekki hrist fram úr erminni." 

Björn bendir á að álögur á fólk fari hækkandi, svo virðist sem sveitarfélög séu að hækka gjaldskrár sínar svo dæmi sé tekið og það komi illa við almenning.  „Það eru allir að hækka alla skapaða hluti og ætli við förum ekki fram með kröfur á svipuðum nótum, við viljum sjá hækkanir á launum okkar félagsmanna," segir hann.

Nýjast