Á handahlaupum til Danmerkur

Hópurinnn að loknu handahlaupinu.
Hópurinnn að loknu handahlaupinu.

Fimleikaiðkendur Völsungs á Húsavík  á aldrinum 11-16 ára eru að fara í æfingabúðir til Ollerup í Danmörku næsta sumar. Þessi ferð er orðin fastur liður í starfi fimleikadeildar og er mikil lyftistöng fyrir þá sem í hana fara.

Í Ollerup eru allar aðstæður og þjálfun til fyrirmyndar og hafa krakkarnir alltaf lært mikið. Þau hafa verið dugleg að safna fyrir ferðinni og er einn liður í þeirri söfnun að safna áheitum í bænum en það gerðu þau í síðustu viku. Einnig  söfnuðu iðkendur úr Mývatnssveit áheitum í fyrirtækjum þar.

Á laugardaginn síðasta stóðu krakkarnir svo við sinn hlut og fóru á handahlaupum í kring um gervigrasvöllinn vegalengdina sem nemur einum Botnsvatnshring, eða 5 km. Allt gekk vel og samkvæmt áætlun. Krakkarnir og foreldrar þeirra vilja þakka öllum þeim sem studdu þau kærlega fyrir. JHF

 

Nýjast