720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurland í næstu viku

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Alls 720 skammtar af Pfizer bóluefninu berast á Norðurland í næstu viku og verður bóluefnið nýtt til að bólusetja íbúa 80 ára og eldri og er búist við að fara langleiðina með að klára þann hóp með þessum skömmtum. Þetta kemur fram á vef HSN. Bólusetningar munu fara fram dagana 2. - 5. mars.

Á Akureyri verður fólk boðað með SMS- skilaboðum þar sem tími og staðsetning kemur fram en hringt verður í þá sem ekki hafa farsíma. Á Akureyri er gert ráð fyrir að bólusetja eftir hádegi þriðjudaginn 2. mars á Slökkvistöð Akureyrar.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi fær fólk boð í bólusetningu annaðhvort með SMS-skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram. 

 


Athugasemdir

Nýjast