Kísilver PCC á Bakka við Húsavík mun þurfa 66 þúsund tonn af kolum árlega til þess að standa undir framleiðslu á kísilmálmi. Áætlað er að framleiðsla á kísilmálmi hefjist í árslok.
Fyrir hvert tonn af kísilmálmi þarf að brenna um 400 kíló af kolefnisgjafa, svo sem kolum, viðarkolum, koks, viðar eða kolaskauta. Þetta kemur fram í umverfismati kísilvers PCC frá 2013 og RÚV fjallar um.
Kolin eru þó ekki brennd til að framleiða orku heldur er ástæðan sú að til þess að framleiða kísilmálm þarf að aðskilja sílikon frá súrefni í ofninunum en það gerist einungis með háum hita og til að koma í veg fyrir að súrefnið bindist því aftur eru kolefnin notuð.
Í umsögn um kísilverið árið 2013 sagði Skipulagsstofnun að það sé augljóst megi vera að útblástur mengunarefna frá verksmiðjunni muni rýra loftgæði í nágrenni hennar og að áhrif þess verði nokkuð neikvæð. Styrkur þeirra efna sem losni út í andrúmsloftið verði þó undir viðmiðum.