46 stiga heitt vatn í Vaðlaheiðargöngum

Á bilinu 250 til 300 l/s af 46 stiga heitu vatni sprautast úr vatnsæð í Vaðlaheiðargöngum. Mikil gufa er í göngunum, sem eru orðin nærri 1.900 metar að lengd. Vegna mikils hita brugðu starfsmenn á það ráð að sprauta köldu vatni frá borörmum yfir starfsmenn sem unnu úr körfu. Meðfylgjandi mynd tók Oddur Sigurðsson eftirlitsmaður

Nýjast