135 milljónir til rannsókna í ferðaþjónustu

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra staðfesti nýlega til­lögu Stjórn­stöðvar ferðamála um alls tíu styrki til rann­sókna í ferðaþjón­ustu. Í fjár­lög­um þessa árs var sér­stök auka­fjár­veit­ing í þenn­an mála­flokk.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­inu.

„Stjórnstöð ferðamála setti í byrjun árs á fót stýrihóp um áreiðanleg gögn og eitt af verkefnum hópsins var að koma með tillögur um ráðstöfun á ofangreindum fjármunum. Vinnuhópar greindu einstök rannsóknarverkefni og stýrihópur valdi síðan verkefni með áherslu á að sameiginlega skili þau niðurstöðum sem veita heildstæða yfirsýn yfir stöðu mála tengt ferðaþjónustunni.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður muni liggja fyrir á þessu ári eða í upphafi næsta árs. Gert er ráð fyrir að sum þeirra verði hluti af endurteknum mælingum og rannsóknum til framtíðar en önnur verði ekki endurtekin, allt eftir eðli þeirra,“ segir í tilkynningunni. /epe.

Nýjast