Anna Júlíusdóttir nýr formaður Einingar-Iðju Tekst full af eldmóði á við stór, krefjandi verkefni sem framundan eru
„Það eru mörg, stór og krefjandi verkefni framundan sem takast þarf á við, en ég er full af eldmóði og hef mikinn áhuga fyrir verkalýðsmálum. Ég brenn fyrir því að vinna að bættum hag verkafólks og að staða þess verði sem allra best,“ segir Anna Júlíusdóttir nýkjörinn formaður Einingar Iðju sem starfar á Eyjafjarðarsvæðinu, frá Siglufirði og að Grenivík. Félagsmenn eru um 8 þúsund talsins og er félagið stærsta verkalýðsfélagið á landsbyggðinni.