Fönguðu Eurovision í gamalt fiskinet
Listamaður frá Kýpur vann með börnum úr Borgarhólsskóla á Húsavík
Listamaður frá Kýpur vann með börnum úr Borgarhólsskóla á Húsavík
Sigrún Björk Jakobsdóttir framkvæmdastjori Isavia Innanlandsflugvalla segir í samtali við Vikublaðið að viðbygging við flugstöðina á Akureyri muni rísa von bráðar, von sé á stáli í grind hússins í byrjun maí
Hjónin Jóhanna Ásdís Baldursdóttir og Örlygur Hnefill Örlygsson, hóteleigendur á Húsavík keyptu í vikunni allan búnað úr þrotabúi fjölmiðlafyrirtækisins N4 ehf.
Verið er að leggja lokahönd á smíði líkans af eikarbátnum Húna sem fagnar 60 ára afmæli sínu á vordögum. Það verður afhjúpað við athöfn sem efnt verður til við hátíðarhöld í tengslum við sjómannadaginn í byrjun júní. Elvar Þór Antonsson á Dalvík smíðar líkanið af Húna og er það svo gott sem tilbúið að sögn Sigfúsar Ólafs Helgasonar safnstjóra Iðnaðarsafnsins.
112. Íslandsglíman fer fram laugardaginn 15. apríl í íþróttahúsi Glerárskóla
Við hefjum föstudagsfréttir á því að minnast Árna Tryggvasonar, leikara og Hríseyings. Árni var fæddur þann 19.janúar 1924 að Víkurbakka á Árskógsströnd en flytur ungur til Hríseyjar með fjölskyldu sinni þar sem hann ólst upp. Árni lést þann 13.apríl á Eir.
Við vottum fjölskyldu Árna innilegar samúðarkveðjur. Fallinn er frá góður Hríseyjar-sonur.
Á samfélagsmiðlum í morgun hefur verið bent á afleitt aðgengi að hleðslustöð ON sem stendur við Glerártorg á Akureyri. Orka náttúrunnar tekur heilshugar undir að aðgengi að umræddri stöð er langt frá því að vera boðlegt hreyfihömluðum og stenst alls ekki þær kröfur sem Orka náttúrunnar setur sér við uppsetningu hleðslustöðva í dag.
Fjölmargir félagsmenn Einingar-Iðju hafa keypt og notað niðurgreidd gjafabréf frá Niceair á orlofsvef félagsins á undanförnum mánuðum.
Oft ..... þegar ég stend fyrir framan nemendur, sem ég geri nánast daglega, fæ ég tár í augun vegna þess sem ég skynja, sé og upplifi. Mér finnst ég finna fyrir hjartslætti nemenda, finna hvernig þeim líður og hversu mikið þá þyrstir í þau tækifæri sem lífið hefur upp á að bjóða. Kannski er þetta ímyndun! Ég skynja líka forvitni, virðingu og þakklæti. Yfirleitt langar mig að ganga að hverjum og einum eftir fyrirlestur, faðma alla og færa þeim orku sem nýtist þeim í framtíðinni.
Mikið álag hefur verið á legudeildum Sjúkrahússins á Akureyri það sem af er ári og var rúmanýting á lyflækninga-, skurðlækninga- og geðdeild sjúkrahússins vel yfir 100% á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Í Velferðarráði Akureyrarbæjar var nýverið fjallað um undirbúning að stofnun þjálfunar-og meðferðarstaðs þar sem veitt væri sérhæfð þjónusta til barna og fjölskyldna þeirra sem glíma við ýmiskonar flóknar félagslegar og heilsufarslegar aðstæður. Greinarhöfundur, sem situr fyrir hönd Samfylkingarinnar í Velferðarráði, óskaði eftir umfjöllun um hvar þetta mál væri statt, en nú í nokkur ár hefur umræða verið um slíkan stað sem gæti þjónað hópi barna sem þurfa sértæka þjálfun og nálgun til að bæta líðan og lífsgæði.
Stórutjarnaskóli tekur þátt á evrópsku samstarfsverkefni
Jón Gunnar Benjamínsson bendir á í færslu á Facebook í dag hvernig búið er um hleðslustöð frá Orku náttúrunnar á bílaplaninu við Glerártorg. Óhætt er að fullyrða að fólk sem nota þarf hjólastól á ekki erindi sem erfiði þar.
Akureyrarbær bauð í mars byggingarrétt i Móahverfi 1 áfanga til kaups og er óhætt að segja að vel hafi til tekist. Móahverfi er eins og fólki er kunnugt nýtt íbúðahverfi í norðvesturhluta Akureyrar þar sem gert er ráð fyrir að byggðar verði allt að 1.100 íbúðir á næstu árum. Akureyrarbær auglýsti nú eftir tilboðum í 11 lóðir í fyrsta áfanga auk þess sem auglýstar voru tvær lóðir þar sem úthlutun byggði á uppbyggingu íbúða á grundvelli stofnframlaga.
Ladies Circle 7 hélt á dögunum góðgerðarviðburðinn List, lyst og list þar sem safnað var fyrir verkefni Eyjafjarðardeildar Rauða krossins
Fiskidagurinn mikli snýr aftur í sumar eftir heimsfaraldur og verður boðið til hátíðar dagana 10-13 ágúst nk. ,, Undirbúningur hefur staðið síðan í haust og gengur vel“ segir Júlíus Júlíusson .
Skógræktarfélag Eyfirðinga fékk í gær forláta bandsög að gjöf frá Guðmundi Þorsteinssyni, söng og skipasmíðameistara. Bandsögin sú arna á sér merka sögu, var keypt ný til skipasmíðastöðvar KEA á eftirstríðsárum, þjónaði síðar Slippstöðinni á Akureyri um árabil áður en hún barst í eigu Guðmundar.
Hann hefur haldið hefur gripnum vel við, enda er hún eins og ný úr kassanum og kemur til með að nýtast okkur afar vel til viðarvinnslu í Kjarnaskógi. Við þökkum höfðinglega gjöf !
Þetta kemur Fram á facebook síðu Skógræktarfélags Eyfirðinga
Þann 15 apríl nk. eiga nagladekk að vera farin undan bílum án þess þó að fólk þurfi að fá sting í hjartað strax yfir því að aka enn á nöglunum en burt þurfa þeir nú samt. Það fer alltaf allt á hliðina á dekkjaverkstæðum á þessum árstíma, vefnum fýsti að vita hvort skollin væri á vertíð?
Annað árið í röð komu helstu fjárfestar landsins saman á Siglufirði undir lok marsmánaðar til fundar við frumkvöðla í orku-, auðlinda- og umhverfismálum
Samkvæmt tölum frá Þjóðskrá voru Akureyringar 19.989 þann 1 apríl sl. og því afar líklegt að 20.000 íbúamarkinu verði náð núna á næstu dögum.
Ætla sér stóra hluti í framleiðslu á innlendu efni fyrir vefsjónvarp
Eins og vefurinn greindi frá í mars sl. ákváðu stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga ses. og Sparisjóðs Austurlands hf. að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna.
Heimsferðir hafa í gegnum árin boðið upp á flug frá Akureyri til spennandi áfangastaða úti í heimi. Ferðaskrifstofan bætir nú enn í úrvalið og býður upp á flug til Tenerife frá Akureyri, Komnar eru í sölu ferðir í júní og júlí þar sem boðið er upp á hagstæða og vandaða ferðapakka.
Bæjarstjórn er i framkvæmdahug og auglysir einnig Glerárgötu 7 og tillögu á breytingu á deiliskipulagi miðbæjarins á þessari margumræddu lóð.
Á heimasíðu Akureyrar er að finna i dag tilkynningu um tillögu sem er á vinnslustigi eins og segir og snertir deiliskipulag á lóðum við Viðjulund 1 og 2.
Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra óskað eftir svörum frá Akureyrarbæ og Vegagerðinni um til hvaða aðgerða hefði verið gripið til að draga úr umferðarhávaða í bænum frá því aðgerðaráætlun gegn hávaða var fyrst útbúin árið 2015.