Vísindaskóli unga fólksins annað árið í röð

Ánægðir krakkar í Vísindaskólanum
Ánægðir krakkar í Vísindaskólanum

Vísindaskóli unga fólksins verður starfræktur annað árið í röð við Háskólann á Akureyri vikuna 20.-24. júní. Skólinn er ætlaður börnum á aldrinum 11-13 ára. Viðbrögð við þessari nýjung í fyrra voru einstaklega góð en þá tóku 90 börn þátt í fjölbreyttri dagskrá vísinda og ævintýra. Að þessu sinni verður boðið upp á ný þemu þannig að börnin sem voru með í fyrra geta nú kynnst nýjum verkefnum með nýjum nemendum.

Skólinn er byggður upp á fimm þemum og fá nemendur að taka þátt í þeim öllum. Einn daginn fá þau að kynnast mannslíkamanum og mikilvægi þess að hugsa vel um heilsuna. Þá verða kynnt grundvallar atriði í fyrstu hjálp. Annan daginn kynnast þau Biophiliu sem er menntaverkefni mennta- og menningarmálaráðuneytis, Norrænu ráðherranefndarinnar, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur. Þar verða náttúruvísindi, tónlist og tækni tengd saman á nýstárlegan hátt. Þriðja daginn verður starfræktur Litli heimsspekiskólinn þar sem nemendur munu ræða um gott og illt, tilfinningar og hugmyndir sínar. Settur verður upp dómstóll barnanna og farið í heimsókn á lögreglustöðina. Fjórða daginn fá nemendur að kynnast jörðinni, loftlagsbreytingum, gróðurhúsaáhrifum og veðurfari. Gerðar verða margvíslegar tilraunir þessu tengt í eðlis- og efnafræði. Fimmta daginn kynnast þau tölvuheiminum út frá tækni og tölvuleikjum. Sett verður á fót fréttarás Vísindaskólans þar sem nemendur læra að búa til fréttir og taka viðtöl.

Háskólinn á Akureyri lítur á þessa starfssemi sem mikilvægan lið í samfélagsþjónustu en tilgangurinn skólans er tvíþættur. Í fyrsta lagi er honum ætlað að auka framboð á uppbyggilegum tilboðum fyrir börn þegar formlegu skólastarfi lýkur að vori og hins vegar er ætlunin að kynna skólann fyrir ungmennum á svæðinu og færa hann nær norðlenskum heimilum. Kennarar HA og nemendur á lokastigi munu annast kennsluna.

Innritun við skólann er hafinn en gert ráð fyrir að taka við svipuðum fjölda nemenda og í fyrra. Allar nánari upplýsinga má finna á heimasíðu skólans  www.visindaskoli.is  en þar má finna ítarlega dagskrá. (unak.is)/EPE

Nýjast