VISA- bikar: Þór/KA fær Breiðablik í heimsókn

Dregið var í 8- liða úrslit VISA- bikarkeppni kvenna sl. föstudag og drógust Þórs/KA stúlkur gegn Breiðabliksstúlkum. Þar sem Þór/KA dróst á undan upp úr pottinum fær félagið heimaleikjaréttinn og fer leikurinn fram á Akureyrarvelli föstudaginn 18. júlí nk. kl. 19:15. Þetta verður í annað skiptið í sumar sem liðin eigast við en þau mættust í Landsbankadeildinni á Akureyrarvelli þann 3. júní sl. og þá unnu Þórs/KA stelpur 2-1 sigur.

Dragan Kristinn Stojanovic þjálfari Þórs/KA líst vel á að fá Breiðablik í heimsókn. “Mér líst vel á þetta, en það skiptir ekki máli hvaða lið þú færð á þessum tímapunkti, þetta verða allt erfiðir leikir,” segir Dragan. Hann vildi nota tækifærið og hvetja fólk til þess að mæta á völlinn og styðja við bakið á stelpunum “okkar”.

Nýjast