Heimamenn héldu áfram að sækja að marki Aftureldingar og á þessum upphafsmínútum var eins og eitt lið væri á vellinum. KA- menn gerðu hins vegar hrikaleg mistök í öftustu línu liðsins á 10. mínútu leiksins, sem gerði það að verkum að Afturelding náði að jafna metin, þvert á gang leiksins. Varnarmaður KA átti þá sendingu aftur á Sandor Matus í marki heimamanna en sendingin var slök og Alexander Hafþórsson komst inn í sendinguna og skoraði framhjá Sandor í marki KA og jafnaði metin fyrir Aftureldingu. Staðan 1-1.
Það tók heimamenn hinsvegar aðeins tvær mínútur að komast yfir á nýjan leik og það gerði David Disztl á 12. mínútu. Bjarni Pálmason kom þá askvaðandi upp hægri kantinn og sendi boltann fyrir markið og þar var mættur David Disztl sem átti ekki í vandræðum með að setja boltann í netið. Staðan 2-1 fyrir KA og ekki liðin stundafjórðungur af leiknum.
David Disztl var aftur á ferðinni fyrir heimamenn á 39. mínútu. KA átti þá skot að marki sem markvörður gestanna varði en náði ekki að halda boltanum og David var mættur og fylgdi vel á eftir með marki af stuttu færi. Staðan orðin vænleg fyrir heimamenn, 3-1 og þannig stóðu leikar í hálfleik.
Afturelding hóf seinni hálfleikinn af krafti og var ekki á þeim buxunum að gefast upp. Alexander Hafþórsson fékk dauðafæri strax í upphafi seinni hálfleiks er hann fékk boltann inn í teig heimamanna, en skot hans fór beint á Sandor Matus í marki KA.
Aðeins nokkrum mínútum síðar var Alexander aftur á ferðinni fyrir gestina er hann var kominn í fínt færi en skot hans fór hátt yfir markið. Heimamenn komust fljótlega meira inn í leikinn. Færin létu hinsvegar á sér standa og seinni hálfleikurinn var mun daufari en sá fyrri.
Gestirnir áttu nokkur ágætis færi til þess að skora og koma sér inn í leikinn, en allt kom fyrir ekki og leikurinn fjaraði út með sigri KA, 3-1.