Vinnuslys varð um níuleytið í morgun í nágrenni Akureyrar. Mbl.is greindi fyrst frá.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fór á vettvang en ekki fengust upplýsingar um hvort sá sem lenti í slysinu hafi verið fluttur á slysadeild.
Ekki er heldur ljóst um tildrög slyssins.