Byggðarráð Norðurþings Vill fjölga störfum embættis sýslumanns

Húsavík
Húsavík

Byggðarráð Norðurþings hvetur nýjan sýslumann til að fjölga störfum embættisins í sveitarfélaginu þegar ný lög um sýslumenn taka gildi 1. janúar 2027. Samkvæmt lögunum skal að minnsta kosti 65% starfa sýslumanna vera staðsett á landsbyggðinni.

Ráðið bendir á að góð aðstaða sé fyrir hendi bæði á Húsavík, þar sem starfsstöð sýslumanns er þegar starfandi, og í fjarvinnuklösum sveitarfélagsins á Raufarhöfn og Kópaskeri. Þar sé svigrúm til að bæta við starfsfólki án sérstakra framkvæmda.

Í bókun ráðsins kemur jafnframt fram að ríkisstörfum hafi fækkað í Norðurþingi frá árinu 2023 samkvæmt nýlegri skýrslu Byggðastofnunar. Telur ráðið að fjölgun starfa hjá sýslumanni gæti verið mikilvægt skref til að snúa þeirri þróun við og styrkja opinbera þjónustu á svæðinu.

Nýjast