Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri leitar eftir aðstoð
Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) leitar eftir þátttakendum í rannsókn. Þátttakendur þurfa annað hvort að búa í jaðarbyggðum höfuðborgarsvæðisins og sækja vinnu á höfuðborgarsvæðið eða vera íbúar í nærsveitum Akureyrar sem sækja vinnu þangað.3
Rannsóknin snýst um fjarvinnu og mögulegar breytingar þar á í kjölfar Covid og áhrif þess á vegakerfið, rannsóknin er styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.
Þátttakendum er boðið að skrá sig í gjafaleik þar sem 10.000 kr. gjafabréf frá Landsbankanum er í boði.