Vikudagur kemur út í dag

Vikudagur kemur út í dag og að vanda er blaðið stútfullt af fréttum, fróðleik og mannlífsefni. 

Meðal efnis í blaðinu:

-Hildigunnur Svavarsdóttir er framkvæmdastjóri hjúkrunar, bráða-, fræðslu- og gæðasviðs á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún segir starfið krefjandi og tekst á við áskoranir á hverjum degi. Hún reynir að taka ekki vinnuna með heim og hreinsar hugann með alls kyns útivist og hreyfingu sem er hennar helsta áhugamál. Vikudagur heimsótt Hildigunni í vinnuna og spjallaði við hana um spítalalífið, verkefnin framundan og daginn og veginn.

-Raunveruleg hætta er á að skáldahúsin þrjú á Akureyri þurfi að loka vegna skorts á fjárveitingu frá ríkinu.

-Sigrún Stella Bessason, 35 ára söngkona frá Akureyri búsett í Toronto í Kanada, gefur í haust út sína aðra plötu sem nefnist „Kings Park.“ Stella hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur við að klára plötuna. Vikudagur heyrði í Sigrúnu og spurði hana út í nýju plötuna og lífið í Toronto.

-Olís-deild karla í handknattleik fer af stað um helgina þar sem Akureyringar mæta með nokkuð breytt
lið til leiks frá síðasta vetri. Vikudagur spjallaði við Sverre Jakobsson þjálfara Akureyrar og rýndi
í veturinn framundan.

-Ágúst Þór Árnason skrifar leikdóm um Helga Magra sem LA frumsýndi sl. helgi.

Þetta og mun meira til í Vikudegi í dag. Áskriftarsíminn er 460-0750 og 860 6751. Einnig er hægt senda póst á askrift@vikudagur.is  

 

Nýjast