Aðalfundur Rótarý á Íslandi fór fram í gegnum Zoom-fjarfundabúnað nýlega þar sem Verðlauna- og styrktarsjóður Rótarý valdi tvö verkefni á svæðinu til að styrkja; Fjölsmiðjuna og Snjallkennsla.is. Tilgangur sjóðsins er að veita árlega viðurkenningar fyrir framúrskarandi eða nýstárlegt framtak, sem unnið er í umdæminu á sviði mennta, lista, vísinda, samfélagsverkefna eða atvinnumála og hefð er fyrir því að veita viðurkenningar til aðila á félagssvæði þess Rótarýklúbbs sem heldur hið árlega umdæmisþing.
Sökum faraldursins var ekki hægt að halda hefðbundið umdæmisþing. Hvort verkefni fékk 500.000 kr. í sinn hlut og af þessu tilefni kynntu styrkþegarnir verkefnin sín á Zoom fundi.
Bergmann Guðmundsson og Hans Rúnar Snorrason tóku við styrknum fyrir hönd Snjallkennslu.is fyrir framúrskarandi og nýstárlegt verkefni á sviði mennta og vísinda. Soffía Gísladóttir, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, afhenti styrkina. Myndir/Rúnar Björnsson.