Verkfalli frestað

Samn­inga­nefnd Sjúkra­liðafé­lags Íslands hefur und­ir­ritað kjara­samn­inga við Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga en það gerðist á fjórða tím­an­um í nótt. Allsherjar­verk­falli hefur þar með verið frestað en það átti að hefjast á mánu­dag­inn kemur. Samn­ing­arn­ir verða nú kynntir félagsmönnum  og fara síðan í atkvæðagreiðslu.

Krist­ín Á. Guðmunds­dótt­ir, formaður fé­lags­ins, seg­ir í sam­tali við mbl.is að viðræður hafi þokast vel í gær. „Við byrjuðum klukk­an hálf níu í gær­morg­un og vorum að fram und­ir hálf tíu þegar gert var hlé. Síðan var hist aft­ur eft­ir há­degi og fundað þar til und­ir­rit­un fór fram.“

Krist­ín seg­ir jafnframt samn­inga­nefnd­ina telja samn­ing­ana ásætt­an­lega. „Við telj­um að þarna hafi náðst mark­mið okk­ar varðandi launaliðinn. Síðan var verið að ræða ýms­ar aðrar bók­an­ir sem eru í samn­ingn­um. Við hefðum ekki und­ir­ritað ef við teld­um okk­ur ekki geta selt þetta,“ segir Kristín samtali við mbl.is

EPE

Nýjast