Verkfall lamar skólastarf og heilbrigðisþjónustu

Áhrif verkfallsins teygja sig víða og er m.a. engin kennsla í MA í dag. Mynd/Þröstur Ernir
Áhrif verkfallsins teygja sig víða og er m.a. engin kennsla í MA í dag. Mynd/Þröstur Ernir

Verkfall SFR og Sjúkraliðafélags Íslands sem skall í nótt hefur víðtæk áhrif í samfélaginu. Engin kennsla er í Menntaskólanum á Akureyri í dag en húsverðir, skólafulltrúi og skrifstofustjóri MA eru félagar í SFR og því getur hefðbundin kennsla ekki farið fram þar sem skólahúsið er læst.

Þá hefur verkfallið lamandi áhrif á kennslustarf í Háskólanum á Akureyri en samkvæmt upplýsingum Vikudags liggur kennsla þar að stórum hluta niðri. Verði ekki samið mun verkfall hafa áhrif á kennslustarf á morgun, föstudag og mánudag og þriðjudag í næstu viku. Hins vegar er kennsla samkvæmt áætlun í Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem enginn starfsmaður VMA er í SFR. 

Verkfallið hefur einnig áhrif á starfssemi Sjúkrahússins á Akureyri en þar eru nú 50 sjúkraliðar og hjúkrunarfræðinemar í verkfalli. Framkvæmdastjórn sjúkrahússins segir bráðaþjónustu verði sinnt eftir bestu getu en lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni.

-þev

Nýjast