Verkefni um endurheimt votlendis hafið

Sett hefur verið af stað verkefni um endurheimt votlendis en það er Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra sem setur það af stað. Landgræðsla ríkisins annast framkvæmdina. Verkefnið er í samræmi við sóknaráætlun í loftlagsmálum.

Aðgerðaáætlun um að endurheimta votlendi hefur verið í mótun inni í ráðuneytinu síðan haustið 2014 í samráði við hagsmuna- og fagaðila. Markmið starfsins var að kortleggja hvaða svæði koma til greina til endurheimtar án þess að skaða hagsmuni annarrar landnotkunar. Jafnframt var markmiðið að móta aðferðafræði til að forgangsraða slíkum svæðum t.d. með tilliti til ávinnings fyrir lífríki, losun gróðurhúsalofttegunda, hagræns ávinnings landeiganda og kostnaðar.

Að vinnunni komu fulltrúar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Bændasamtaka Íslands, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands, Fuglaverndar og Landgræðslu ríkisins.

Samráðshópurinn leggur til að unnið verði að endurheimt votlendis í samræmi við markmið um losun gróðurhúsalofttegunda, stefnu íslenskra stjórnvalda í loftslagsmálum og Aichi markmið samnings Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni. 

Starfshópurinn leggur áherslu á að skoða þurfi hvert endurheimtarverkefni fyrir sig, meta ávinning þess, áform viðkomandi landeiganda og hvort það samræmist öðrum áformum um landnotkun m.a. skipulagsáætlunum. /EPE

Endurheimt votlendis - Aðgerðaáætlun

Nýjast