„Það eru allir glaðir, ferðin tókst í vel og mikil hamingja í hópnum að henni lokinni,“ segir Jón M. Ragnarsson sem ásamt Stefáni Sigurðssyni var fararstjóri í velheppnaðri rafhjólaferð Ferðafélags Akureyrar í Hvalvatnsfjörð um liðna helgi.
Það var mikið um dýrðir hjá Ferðafélaginu en samtals voru 50 manns á ferðinni í þremur skipulögðum ferðum félagsins. Þar af voru 30 manns í rafhjólaferð í blíðskaparveðri á sunnudeginum.

Fararstjórarnir alsælir, Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson
Krefjandi en skemmtileg leið
Lagt var upp frá skrifstofu FFA á Akureyri og þaðan ekið á Leirdalsheiði þar sem ferðin hófst. Um 20 kílómetra leið er þaðan og niður að sjó. „Þetta er krefjandi en mjög skemmtileg og falleg leið. Landslagið einstakt og margt að sjá og skoða. Hjóltúrinn reyndi alveg á en það er talsvert bratt víða og eins mikið um laust grjót,“ segir Jón. Einnig þurfti að fara yfir nokkrar lækjarsprænur og eina á en allt gekk eins og í sögu. „Það kom ekki nema ein skráma í ferðinni sem þurfti einn plástur sem verður að teljast vel sloppið,“ bætir hann við og segir að smá byltur gerir ekki hjólafólki bara gott og herði það.

Víða þurfti að hjóla yfir læki í ferðinni og fórst þátttakendur það vel úr úr hendi.
Áhuginn vex
Jón segir áhuga almennings á rafhjólaferðum hafa aukist vaxið jafnt og þétt á liðnum árum, það megi alveg orðað það svo að sprenging hafi orðið í þeim efnum. „Það bætist stöðugt í hópinn sem er bara alveg frábært. Það er gaman að bjóða upp á ferðir þar sem fólk hjólar saman og það er alltaf góð þátttaka í slíkum ferðum. Fólk sem er að byrja í sportinu finnur öryggi í því að vera í hóp þar sem boðið er upp á leiðsögn, smáviðgerðir og plásta ef á þar að halda,“ segir Jón. „Ferðin stóðst væntingar þátttakenda, það voru allir ánægðir að leiðarlokum, skemmtu sér konunglega og þá er tilganginum náð.“
